
Hellunesgata 6
Um lóðina
Landbúnaðarlóð á Skálabrekku Eystri við Þingvallavatn. Á landbúnaðarlóð er heimilt að reisa eitt íbúðarhús og aukahús s.s. gestahús, gróðurhús, hesthús og/eða geymslu. Hægt er að sækja um lögheimili á landbúnaðarlóð og því fylgir tiltekin þjónusta frá sveitarfélaginu.
Deiliskipulagsbreyting
Breyting á deiliskipulagsskilmálum
Bláskógabyggð — Skálabrekka Eystri í Þingvallasveit
Í Aðalskipulagi Bláskógabyggðar 2015–2027 er landið skilgreint sem landbúnaðarsvæði. Ákvæði í aðalskipulagi eru nokkuð rúm og landeigandi óskar að þrengja þær heimildir sem gilda í deiliskipulagi, þannig að landnotkun samræmist hugmynd landeigenda um kyrrlát athvörf í sveit.
18. grein — Atvinnurekstur
Óheimilt er að stunda umfangsmikinn atvinnurekstur á svæðinu sem felur í sér mikinn ágang. Undir það fellur umferð fólksflutningabifreiða og rekstur gististaða sem háðir eru rekstrarleyfi/starfsleyfi skv. reglugerð nr. 1277/2016. Flokkur I heimagisting skv. 3. gr. sbr 13. gr. sömu reglugerðar er þó leyfð á svæðinu.
Pétur H. Jónsson skipulagsfr. arkitekt f.a.í.
Skoða skjal